Lokasprettur Lífshlaupsins - myndaleikur
22.02.2019Nú erum við komin á lokasprettinn í Lífshlaupsinu! Tveir heppir þátttakendur hafa verið dregnir út í myndaleiknum okkar en það eru þau Sveinn Viðarsson og Jóna Lind. Sveinn fékk gjafabréf fyrir tvo í Laugarspa, og Jóna Lind fékk ostakörfu frá MS!
Það á eftir að draga oftar út í myndaleiknum svo það erum að gera að halda áfram að taka myndir senda okkur. Það gerir þú með því að nota myllumerkið #lifshlaupid á Instagram, senda okkur skilaboð á lifshlaupid@isi.is eða í gegnum Facebook síðu okkar.
Í lok Lífshlaupsins er svo verðlaunað fyrir bestu myndina! Hér má sjá myndina sem Jóna Lind sendi inn