Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu hefst 5. febrúar

09.01.2020

Fyrir þá sem ekki vita er Lífshlaupið heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa og á síðasta ári voru um 17 þúsund virkir þátttakendur í um samtals 500 vinnustöðum og skólum. Verkefnið miðar að því að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er.
Lífhlaupið er góð byrjun á hreyfingu fyrir lífstíð.

Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu: 

Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar
Vinnustaðakeppni í þrjár vikur, 5. - 25. febrúar
Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið