Skráningarleikur Lífshlaupsins og Rás2 er í fullum gangi
06.02.2020Á hverjum virkum degi eru dregnir út heppnir þátttakendur sem hafa skráð sig til keppni og fær viðkomandi glaðning frá einum af styrktaraðilum Lífshlaupsins.
Nöfn vinningshafa verða lesin upp í Þættinum Morgunverkin á Rás2.
Styrktaraðilar Lífshlaupsins í ár eru
MS, World Class, Primal Iceland, Keiluhöllin, Skautahöllin, Klifurhúsið og Ávaxtabíllinn.
Í boði eru gjafabréf í klifur, baðstofu, í keilu, á skauta, klippikort í líkamsrækt, ostakörfur, Kókómjólk/Hleðsla og ávaxtabakkar.
Aukavinningar frá Krauma og Nivea.
Það borgar sig að skrá sig og vera með